fimmtudagur, 22. september 2016

Æj mamma mín

Hvenær verður þetta betra? Ég get ekki meira. Ég er meira að segja svo barnaleg að spyrja þig bara hvort þú getir ekki komið aftur?
Þegar ég varð unglingur og gat í raun og veru tengt tilfinningarnar mínar við hvað væri að, þá var það einfalt; það vantaði bút í hjartað mitt sem hafði tapast þegar pabbi og Oddur fóru. Stórt tómarúm sem varð þegar ég var aðeins 5 ára en gerði mér ekki grein fyrir fyrr en ég var langleiðina komin á fullorðinsárin. Fyrst þegar ég fór að hitta sálfræðing og ræða hvað það væri sem væri að angra mig. Einfalt, sorgin hafði angrað mig ár eftir ár og það var ekkert hægt að gera. Ég leitaði og leitaði og reyndi eftir fremsta megni að gera lífið bærilegra á einhvern hátt en fann aldrei varanlega lausn. Svona minnist ég æsku minnar, gífurlegt tómarúm í hjartanu og fannst ég einhvernveginn alltaf nokkrum skrefum fyrir aftan alla krakkana sem ég ólst upp með á Laugarvatni - fylgdist með í fjarska þegar þau fóru með foreldrum sínum í frí, eða gerðu eitthvað sem við gerðum ekki. Jafnvel þó við gerðum það að þá var það ekki eins í mínum huga því ég átti bara eitt foreldri.
En með árunum fór ég að sætta mig við þetta. Pabbi var farinn, ég vissi að hann kæmi ekki aftur og ég þyrfti að gera gott úr því sem var. Heppin var ég að mér var úthlutað mömmu sem var sú allra besta. Hún hafði þó sína djöfla að draga og höfðu oft slæm áhrif á mig en mikið sem ég dáði og dýrkaði mömmu. Mamma varð mín að öllu leyti, hún kom í stað föðurs og átti því að vera 100% fullkomin í bæði hlutverk og í minningunni ertu það. Ég brosi þegar ég hugsa til baka hversu mögnuð þú varst í öllum þínum hlutverkum. Sjálfstæðin uppmáluð enda orðin vön að treysta bara á sjálfa þig. Þú varst flottust og klárust og fallegust og svo ótrúlega skemmtileg. Þú getur því ímyndað þér skarðið sem varð í hjarta mínu þegar þú fórst..... þú nefnilega varst margar manneskjur í mínum huga. Foreldrið mitt sem fyllti spor tveggja einstaklinga, mömmu og pabba. Mín besta vinkona, persónulegur ráðgjafi og sú sem kippti mér niður á jörðina þegar ég var komin of hátt. Hvernig er hægt að hlúa að svo stóru sári sem situr nú á sálu minni og hjarta og ég get ekki með nokkru móti lagað. Ég get ekki! Ég geeeeeeeeeet ekki mamma. Oft finnst mér eins og ég sé að fá stresskast því ég geri mér grein fyrir því að þú sért í alvöru farin og ég stend eftir ein. Afhverju líður mér eins og ég sé ein? Ég reyni oft að kenna því um að Andrea Ósk er ekki hjá mér en sannleikurinn er samt sá að þegar hún er hjá mér að þá kemur þetta tómarúm oft af fullu afli. Finnst ég ekki geta boðið henni neitt nema mig og er svo hrædd um að eina sem hún þrái er eins og ég, 7 ára gömul, fjölskyldu. Afhverju getur fjölskylda ekki samanstaðið af mér og henni og ég verið fyllilega sátt? Ég þarf að finna þennan frið innra með mér. Náðir þú því eftir pabba og Odd? Ég veit að trúin hjálpaði þér að mörgu leyti en ég veit ekki hvað ég get gert.
Ég er ekki ein. Mér við hlið stendur yndislegur maður sem elskar mig þrátt fyrir alla mína galla og ókosti. Sem reynir eftir fremsta megni að stappa í mig stálinu á meðan ég ýti honum jafn óðum frá mér. Hver getur elskað mig? Hann er án efa fallegasta manneskja sem ég hef fengið þann heiður að kynnast. Ert þú á bakvið þetta mamma? Ég er svo oft búin að biðja þig um hjálp og velti því oft fyrir mér hvort þú sért að því á einhvern hátt. Það færi þá algjörlega gegn því sem þú trúðir, að það sem ég hafði var gott og þú hefðir sko engar áhyggjur af mér því ég væri í svo góðum höndum. Þú hefur kannski séð það eftir að þú fórst að ég var sífellt að leita. Ég veit ekki að hverju eða af hverjum en leiðir okkar lágu saman og ég hef upplifað einar mögnuðustu tilfinningar lífs míns. Svo fallegt hjarta og sál sem er svo tilbúinn að gera allt fyrir mig. Ég hef aldrei á minni ævi haft svona manneskju mér við hlið og oft finnst mér ég ekki kunna að meta það. Ég er hrædd og á stundum sem þessum þegar tárin hætta ekki að renna að þá er allt ómögulegt. Ég get þetta ekki án þín. Þetta er svo sárt mamma. Afhverju við? Afhverju þú?
Viltu hjálpa mér mamma? Gerðu það..... ég þarf að finna frið innra með mér. Ég þarf að finna fyrir ró sem endist lengur en í einn dag. Ég þarf öryggi. Ég verð að trúa því að þið pabbi og Oddur getið hjálpað mér. Hver er annars tilgangurinn með þessu? Ef við missum ykkur héðan, þá hljótið þið að vera verndarenglar þarna hiinum megin.


Gerðu það mamma.... orkan mín er búin.

miðvikudagur, 14. september 2016

Ekki gleymd elsku fallega mamma mín.

Er eflaust búin að hugsa um að skrifa þér hér á hverjum degi frá því ég skrifaði síðast. Afhverju hef ég ekki komið mér í það þá? Það er góð spurning og lítið um svör.

Dagarnir eru svo sannarlega mis erfiðir elsku hjartans mamma mín. Sumir eru svo erfiðir að mig verkjar allsstaðar. Mér líður oft sem ég nái ekki andanum og að ljósið sé svo langt undan. Ég sakna þín svo ólýsanlega mamma. Ég get ekki reynt að útskýra eða setja í orð.

Ég hugsa svo oft hvað þú myndir segja við mig með allt sem hefur gengið á hér. Ég veit að þér fannst ég vera í öruggum höndum og á góðum stað. Það var vissulega rétt en það var svo stórt tómarúm í hjartanu mínu sem sveið alla daga. Þú varst farin og ég vissi ekki hvernig ég átti að vera. Ég þarfnaðist ást og umhyggju meira en venjulegt þykir og fór því kannski í leit að því á röngum stöðum. Ég sé eftir svo mörgu mamma. Hvernig hlutirnir fóru og ég lít allt of oft til baka en get samt ekki hægt að finna fyrir þeim tilfinningum sem eru innra með mér eftir þessa löngu þrautagöngu sem þetta ár hefur verið.
Ég hafði það vissulega gott. Það var ekki hægt að kvarta yfir mörgu, nema þeirri döpru staðreynd að þú værir farin og að sárin sem því fylgdu svo djúp og sár. Ég þráði að eiga fjölskyldu, eins og allt mitt líf. Ég og Andrea Ósk áttum undir góðan verndarvæng að leita og ég hugsa oft hvort þér finnist ég hafa kastað því frá mér.

Ég kynntist ástinni. Ást sem ég vissi ekki að væri til, nema jú í mynd barnsins míns. Það er auðvitað ekki hægt að líka ást sinni á barninu sínu við neitt í þessu lífi en heldur ekki þessari ást. Vá.
Hann er svo góður við mig. Hann hlúir að mér á svo marga vegu og ég vissi ekki að einhver gæti elskað mig svona heitt og ég tilbaka. Þetta er til, í alvörunni.

Ég hef oft hugsað um að fara tilbaka. Eða reyna það. En það væri ekki hægt því tilbaka þýddi að hann væri ekki þar. Hann sem skiptir mig svo miklu máli og ég hef lært það núna að maður þarf alltaf að fórna einhverju. Stærsta fórnunin til þessa en ég vona að með tíð og tíma geti allir jafnað sig og ég átt gott og farsælt samband við tengdafjölskylduna mína sem var mér svo kær. Er mér svo kær.

Lífið er erfitt. Alla daga finnst mér lífið erfitt en þegar ég lít til baka að þá var það líka svoleiðis þá. Þó að fyrir væri allt öryggið sem var í boði, ég sá betur um sjálfa mig og leið þar af leiðandi betur í eigin skinni en var alltaf á stöðugu vappi í huganum. Í stöðugri leit. Ég þráði meira, svo miklu meira og ótrúlegt að það skyldi falla svona í hendurnar á mér að hafa kynnst einum sem þráði það sama.

Ég vona að þetta verði auðveldara því núna er þetta oft svo ótrúlega erfitt. Ég vil hafa barnið mitt hjá mér alla daga, en vil samt geta deilt því á milli tveggja einstaklinga að sjá um hana. Hún geti farið í pössun og umgengist ættingja sína en þetta er ekki raunin í dag. Það er blákaldur raunveruleikinn að ég hef engann hér í Reykjavík í mínu baklandi. Andrea Ósk mun lifa og þekkja best þá sem ég kalla vini mína í dag og það mun vera hennar bakland. Ég vona svo margt mamma mín.
Ég þrái svo margt og langar svo að sameina allt sem passar ekki einu sinni saman. Ég vildi að þú værir hér. Söknuðurinn svo mikill.

Ég gæti eflaust skrifað til þín í allt kvöld enda hefur margt á daga mína drifið en ég vildi senda á þig lauslegri kveðju og minna þig á því að ég hef ekki gleymt þér. Þú ert efst í huga mér öllum stundum og ég reyni að hugsa um fallega tíma. Um fallegu þig og hversu dásamlega skemmtileg manneskja þú varst. Engin eins og þú.

Á morgun er jarðarför hjá pabba hans Kára. Ó hvað þetta rifjaði upp erfiða tíma og á morgun mun ég gráta. Ég mun gráta þig og alla þá sem hafa farið allt allt of snemma frá okkur.

Ást að eilífu yndislega mamma mín.